Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 18. apríl 1996, kl. 11:36:03 (4950)

1996-04-18 11:36:03# 120. lþ. 122.3 fundur 428. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtatekjur) frv., 429. mál: #A staðgreiðsla skatts af vaxtatekjum# frv., SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[11:36]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. sem var að ljúka máli sínu færði rök sem að hans áliti eru mjög sterk gegn frv. ríkisstjórnarinnar. Af því tilefni langar mig til að spyrja hann og biðja hann um að ítreka þá afstöðu sína: Er hann með þessu að segja að hann muni greiða atkvæði gegn frv. ríkisstjórnarinnar ef það kemur úr nefnd? Og mér er forvitni á að vita hvort fleiri af flokksbræðrum hans ætla sér að leggjast gegn frv. ríkisstjórnarinnar og greiða atkvæði gegn því. Ég vil gjarnan fá að vita frá hv. þm. hvort að honum sé kunnugt um það.