Tæknifrjóvgun

Þriðjudaginn 14. maí 1996, kl. 21:47:33 (6046)

1996-05-14 21:47:33# 120. lþ. 137.5 fundur 154. mál: #A tæknifrjóvgun# frv. 55/1996, Frsm. 1. minni hluta GGuðbj (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur

[21:47]

Frsm. 1. minni hluta allshn. (Guðný Guðbjörnsdóttir) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég sit í hv. allshn. en get með engu móti litið á mig sem talsmann nefndarinnar í þessu máli þar sem ég hef verið mjög á öndverðum meiði við meiri hlutann í veigamiklum atriðum. Meðal annars varðandi það atriði sem hér er til umræðu. Þess vegna verð ég að taka undir það að mér finnst það mjög réttmæt krafa sem fram hefur komið að ákveðinn talsmaður meiri hluta allshn. sé viðstaddur. Ég geri það að tillögu minni að þessari umræðu verði frestað ef ekki verður hægt að bæta þar úr.