[13:13]
Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Með lögsetningu þessari er verið að koma á aftur tvísköttun hjá hópi lífeyrisþega sem var afnumin fyrir um það bil ári síðan. Ég mótmæli þeirri atlögu að öldruðum sem felst í þessu og fleiru sem kemur frá ríkisstjórninni þessa dagana. Ég segi nei.