[22:30]
Forseti (Ragnar Arnalds):
Áður en næsti ræðumaður tekur til máls vil ég láta þess getið að eftir því sem við best vitum þá er ekki von á fleiri atkvæðagreiðslum í kvöld. Á morgun verður fundur kl. 9.30. Hann hefst með atkvæðagreiðslu en á þessum fundi er ætlunin að klára dagskrána sem fyrir liggur.