Frsm. kjörbréfanefndar (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Þjóðvaka, hreyfingar fólksins, í Norðurl. e., Magnúsar Aðalbjörnssonar, sem landskjörstjórn gaf út þann 6. mars 1997 en 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Vilhjálmur Ingi Árnason getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum anna.
Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.