Forseti (Ólafur G Einarsson):
Forseti vill upplýsa nú strax að tilkynnt hafði verið í upphafi fundar að hér færi fram utandagskrárumræða um rekstur Áburðarverksmiðjunnar að loknum atkvæðagreiðslum. Það er samkomulag um að fresta þeirri umræðu til morguns.