Helgidagafriður

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 18:02:57 (5851)

1997-05-05 18:02:57# 121. lþ. 116.9 fundur 31. mál: #A helgidagafriður# (heildarlög) frv., ÓÞÞ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[18:02]

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það á að halda upp á 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi árið 2000. Ég held að það sé tímabært að á það verði látið reyna hvort þessi 1000 ára menningarhefð hefur ekki skilað þeim venjum að Íslendingar gæti að sér svo að ekki þurfi að standa lögregluvörð um það að þeir virði trúna. Þess vegna segi ég já.