Hjálmar Jónsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Það hefur legið fyrir um hríð eftir að hv. landbn. lauk starfi sínu að hv. þm. Egill Jónsson yrði ekki með okkur í þessu máli. Ég hef hins vegar samþykkt málið með fyrirvara og er með fyrirvara á nefndarálitinu og bíð þess að komast til þess að gera grein fyrir honum í ræðu um málið og tel eðlilegt að málinu verði haldið áfram.