Kræklingarækt

Mánudaginn 15. febrúar 1999, kl. 16:37:45 (3598)

1999-02-15 16:37:45# 123. lþ. 65.9 fundur 241. mál: #A kræklingarækt# þál., Flm. GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 123. lþ.

[16:37]

Flm. (Guðjón Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um stuðning ríkisvaldsins við kræklingarækt og annan fjörubúskap. 1. flm. þessarar tillögu er hv. þm. Ólafur Hannibalsson, sem ekki á sæti á þingi í dag og því mæli ég fyrir þessari tillögu sem meðflutningsmaður. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:

,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa lagalega umgjörð fyrir kræklingaeldi og hvers konar annan fjörubúskap sem ætla má að verði á næstu árum tekinn upp á lögbýlum sem aðgang eiga að sjó og að sjá til þess að á viðeigandi rannsóknastofnunum verði sú sérfræðiþekking fyrir hendi sem að haldi má koma og þarf til þess að leiðbeina væntanlegum ræktendum skelfisks og hafa fullnægjandi eftirlit með framleiðslu þeirra í samræmi við kröfur einstakra markaða.``

Nokkuð langt er síðan athygli manna beindist að eldi á skelfiski. Skömmu fyrir stríð fékk sænskt fyrirtæki einkaleyfi hér til ostruræktar sem það hugðist koma á fót í Hvalfirði og reyndar setti Alþingi lög um ostrurækt árið 1939.

Á síðustu árum hafa ýmsir beint sjónum að eldi á kræklingi. Verður þá að hafa í huga að starfsemi þessi fer fram í netlögum sjávarjarða og mun strandlengjan mestöll tilheyra lögbýlum. Því heyrir mál þetta undir landbúnaðarráðuneytið, félagakerfi landbúnaðarins og sjóði á þess vegum. Flutningsmenn sjá enga ástæðu til að breyta því. Hins vegar er nauðsynlegt að skapa þessari nýju atvinnugrein lagaumhverfi við hæfi.

Töluverð sérþekking er til á Hafrannsóknastofnunni varðandi lífshætti kræklings hér við land. Dr. Guðrún Þórarinsdóttir stóð fyrir eldistilraunum á kræklingi í Hvalfirði fyrir áratug og kom í ljós að hann hafði þolanlegan vaxtarhraða, náði markaðsstærð, 75--100 mm á tveimur árum. Besti árangur erlendis er eitt og hálft ár og munar þar náttúrlega talsverðu í afkastagetu og fjárhagslegum ávinningi. Sjálfsagt væri að kanna hvort ávinningur væri í því að flytja inn annan stofn með meiri vaxtarhraða undir ströngu vísindalegu eftirliti og með tilheyrandi sóttvarnarráðstöfunum. Fordæmi er fyrir slíku þegar kræklingur var fluttur með góðum árangri frá Atlantshafsströnd Kanada til Bresku-Kólumbíu við Kyrrahaf og þess vandlega gætt að engir sjúkdómar eða sníkjudýr fylgdu með.

Helsti kostur skeldýraeldis af þessu tagi er sá að til eldisins þarf ekkert fóður. Skelfiskurinn vinnur sjálfur fæðu sína úr sjó.

Þótt eldið sé einfalt og ódýrt þarf þó nokkra stofnfjárfestingu í reipum, akkerum, flotholtum, netpokum o.fl. Hafa ber í huga að tvö ár líða frá upphafi rekstrar þar til fyrsta uppskera næst. Því þurfa brautryðjendur í greininni að hafa góðan aðgang að stofnlánum til þessara hluta. Lánakerfi landbúnaðarins er vel í stakk búið til að sinna þessari þörf og sama má segja um ráðunautaþjónustuna, sem byggir á gömlum merg.

Hitt ættu menn að varast frá upphafi að blanda byggðasjónarmiðum eða öðrum félagslegum viðhorfum í þetta mál, eins og gjarnan hefur tíðkast með nýjungar í atvinnugreinum á sviði landbúnaðarins. Þessi atvinnugrein hefur alla burði til að standa undir sér og á ekki að byggjast á öðru en hreinum viðskiptasjónarmiðum.

Afskipti ríkisins ættu frá upphafi að vera þau ein að skapa greininni hagstætt lagaumhverfi og sjá henni fyrir eðlilegri þjónustu stofnana eins og Hafrannsóknastofnunarinnar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, fjármálastofnana og stofnana landbúnaðarins. Þá þarf atvinnugreinin strangt aðhald eftirlitsstofnana, þar sem á mörkuðunum eru gerðar strangar kröfur um gæði skelfisks og fylgjast þarf vel með skelfiskeitrun og mengun, gera strangar umhverfiskröfur og sjá til þess að framleiðslan fái öll hugsanleg vottorð þar að lútandi frá aðilum sem teknir eru gildir á alþjóðavettvangi.

Markaðshorfur á þessu sviði eru mjög góðar. Framleiðendur hafa hingað til engan veginn getað svarað eftirspurn. Vinnslan er vel vélvædd og að mestu í því fólgin að láta kræklinginn sjálfan hreinsa úr sér sand og óhreinindi en að því loknu er skelin snyrt og flokkuð eftir stærð. Kræklingur er að mestu seldur í skelinni og þannig fæst best verð fyrir hann en komi tímabil þar sem framboð fersks kræklings er umfram eftirspurn má auðvitað frysta hann eða sjóða niður, þótt það skili lægra verði. Helstu framleiðendur nú eru á Nýja Sjálandi og Írlandi, í Skotlandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum og Kanada auk rótgróinna framleiðenda í Hollandi, Frakklandi og á Spáni.

Á Prince Edwards eyju er þetta orðinn talsvert sérhæfður iðnaður sem byggður hefur verið upp skipulega á 10--15 árum, en Prince Edwards eyja er minnsta sjálfsstjórnarhérað Kanada. Sérstakar klakstöðvar sjá um að koma lirfunum af stað og ala upp í skelstærð. Þær fara síðan í eldisstöð og eru aldar þar áfram í hæfilega stærð til flutnings í sjó. Sér þá hver um þann þátt sem hentastur er á hverjum stað og aðrir geta snúið sér að því sem þeim fer best úr hendi. Má þá búast við betri árangri og öruggari afkomu. Á Prince Edwards eyju eru nú framleidd um 9.000 tonn af kræklingi á ári að útflutningsverðmæti um 1 milljarður kr. og starfsmenn eru um 650. Landþrengsli eru farin að há vexti greinarinnar og því hafa fyrirtæki í kræklingaeldi, ásamt framleiðendum á búnaði, markaðsfyrirtækjum og fleiri aðilum, verið að færa út kvíarnar til annarra landa og hafa stofnað til samstarfs um framleiðslu og markaðssetningu. Framleiðsluvara þeirra er markaðssett undir nafninu Island Blue og er orðin heimsþekkt gæðavara á veitingastöðum um allan heim. Áhugi þeirra beinist að því að þjóna Evrópumarkaði frá Íslandi og nýta sér þar með víðtækt flutningakerfi Flugleiða á Evrópuleiðum, tíðar og tiltölulega stuttar siglingar frá Íslandi til annarra Evrópulanda og aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu til að njóta tollfríðinda.

Hópar sjávarbænda á Vesturlandi, við Breiðafjörð og á Vestfjörðum hafa verið að skoða þessi mál og afla sér þekkingar á þeim og eru komnir í samband við kunnáttumenn úr greininni frá Prince Edwards eyju fyrir milligöngu vel þekkts íslensks fyrirtækis. Því má vænta þess að fljótlega komi skriður á málið og þarf löggjafinn því að vera við því búinn að skapa greininni lagalegt og fjárhagslegt umhverfi við hæfi. Þessir erlendu aðilar voru hér á ferð í haust og leist afskaplega vel á aðstæður á nokkrum stöðum á Vesturlandi. Á næstunni eru fyrirhugaðar frekari viðræður við þá.

Við flutningsmenn þessarar tillögu erum þeirrar skoðunar að ræman milli ytri netlagamarka og fjörukambs sé eitthvert auðugasta landsvæði á Íslandi. Hingað til höfum við umgengist það af vægast sagt takmarkaði virðingu og er hirðuleysið raunar öllum sýnilegt sem gaman hafa af fjöruferðum. Sú tillaga sem hér liggur fyrir markar upphaf skipulegs landnáms á þessu svæði. Sé skipulega að verki staðið mun það gefa ríkulega uppskeru og, ef marka má reynslu annarra þjóða, standa undir meiri háttar atvinnurekstri í fyllingu tímans.

Ég legg til að að lokinni fyrri umræðu verði þessari tillögu vísað til hv. sjútvn.