Sólveig Pétursdóttir:
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Þjóðvaka, hreyfingar fólksins, í Reykn., Jörundar Guðmundssonar, sem landskjörstjórn gaf út í dag. 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Lilja Á. Guðmundsdóttir, getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum anna.
Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.