Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti leggur ekki mat á það og tekur ekki þátt í umræðum úr forsetastóli. Hins vegar vill forseti geta þess að þegar hefur borist bréf til forsn. frá hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni varðandi þetta mál og því bréfi verður að sjálfsögðu svarað. Þessari umræðu er lokið.