Verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóðir

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 17:02:28 (7222)

2000-05-09 17:02:28# 125. lþ. 110.23 fundur 420. mál: #A verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóðir# (menntunarkröfur, tryggingar, afleiðusamningar o.fl.) frv. 99/2000, Frsm. minni hluta JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 125. lþ.

[17:02]

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að túlka þetta sem mjög jákvætt innlegg í málið og fer mjög bjartsýn úr þessum ræðustól um það að á morgun verði tekið til óspilltra málanna að ræða við 2. umr. frv. hæstv. viðskrh. um breytingu á samkeppnislöggjöfinni.