Textun íslensks sjónvarpsefnis

Föstudaginn 12. nóvember 1999, kl. 12:44:16 (1371)

1999-11-12 12:44:16# 125. lþ. 24.10 fundur 141. mál: #A textun íslensks sjónvarpsefnis# þál., RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 125. lþ.

[12:44]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef í raun engu við þetta að bæta. Ég tek heils hugar undir orð þingmannsins og ég treysti því að þingmenn sameinist um þetta brýna mál. Þetta er mikið hagsmunamál og ekki dýrt, eins og fram kom í máli þingmannsins.