Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Þetta mál er flutt af forsrh. vegna þess að um verkaskiptingarmál er að ræða, ella hefði málið verið flutt af hæstv. viðsrkh. Ef um efnislega breytingu hefði verið að ræða þá hefði málið að sjálfsögðu gengið til efh.- og viðskn. Hér er eingöngu um að ræða verkaskiptingarbreytingu. Þess vegna var málið flutt af forsrh. og þess vegna á málið að ganga til allshn.