Yfirlýsingar bankastjóra Landsbankans um sameiningu banka

Mánudaginn 06. desember 1999, kl. 14:21:00 (2312)

1999-12-06 14:21:00# 125. lþ. 36.1 fundur 181#B yfirlýsingar bankastjóra Landsbankans um sameiningu banka# (óundirbúin fsp.), viðskrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 125. lþ.

[14:21]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Ég vona að hv. þm. skilji að á meðan engar ákvarðanir hafa verið teknar og enginn slíkur undirbúningur er í gangi, eins og hv. þm. hefur verið að gera að umræðuefni, þá er auðvitað ekki hægt að gefa önnur svör en að engin ákvörðun hafi verið tekin í þessum efnum. Hvað er hv. þm. að biðja um? Er hv. þm. að biðja um svör við öðru en því sem rétt og satt er?