Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég vil koma þeirri leiðréttingu á framfæri að ég var ekki að væna hæstv. forseta þingsins um ósannindi, alls ekki. Ég sagði að hann væri að vitna í skráningu sem hlyti þá að vera ábótavant. Ég vildi aðeins koma þessari leiðréttingu á framfæri.