Könnun á áhrifum fiskmarkaða

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 20:32:19 (8430)

2001-05-19 20:32:19# 126. lþ. 129.46 fundur 243. mál: #A könnun á áhrifum fiskmarkaða# þál. 35/126, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[20:32]

Frsm. sjútvn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1321 um könnun á áhrifum fiskmarkaða.

Sjútvn. fjallaði um málið og bendir á að á fiskmörkuðum eru nú árlega seld um 90--100 þús. tonn af bolfiski fyrir um 10 milljarða kr. Telur nefndin að fiskmarkaðir séu mikilvægir fyrir þróun sjávarútvegs á Íslandi og því mikilvægt að gerð sé vönduð úttekt á helstu álitamálum sem fram hafa komið í umfjöllun um fiskmarkaði og mikilvægi þeirra, til að mynda brottkasti, verðmyndun sjávarafla, tekjum útgerða og sjómanna, sérhæfingu í fiskvinnslu, nýtingu áður vannýttra fisktegunda, aðgengi fiskvinnslunnar að hráefni, erlendum mörkuðum fyrir sjávarafla og sjávarafurðir, flutningi á afla innan lands og byggðaþróun.

Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Árni Steinar Jóhannsson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita Einar K. Guðfinnsson, formaður og framsögumaður, Jóhann Ársælsson, Kristinn H. Gunnarsson, Svanfríður Jónasdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón A. Kristjánsson, Vilhjálmur Egilsson og Hjálmar Árnason.