Ummæli formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins

Miðvikudaginn 01. nóvember 2000, kl. 14:19:07 (1068)

2000-11-01 14:19:07# 126. lþ. 18.91 fundur 80#B ummæli formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 126. lþ.

[14:19]

Forseti (Halldór Blöndal):

Forseti hlýtur að taka fram að hér hafa orðið umræður sem eru efnislega um þær umræður utan dagskrár sem áðan fóru fram og um ummæli sem þá voru látin falla. Það var samkomulag um það og enginn ágreiningur um að utandagskrárumræðan skyldi standa í hálftíma. Þingmönnum er kunnugt að það er vel hægt og vandalaust að halda uppi umræðum um störf þingsins í hálftíma þegar þannig liggur á þingmönnum.