Viðvera þingmanna

Miðvikudaginn 08. nóvember 2000, kl. 13:33:39 (1417)

2000-11-08 13:33:39# 126. lþ. 21.93 fundur 95#B viðvera þingmanna# (aths. um störf þingsins), Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 126. lþ.

[13:33]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Sá forseti sem hér stýrir fundi hefur ekki heyrt þá tilkynningu og minnir hv. þm. á að það er mjög algengt að hér sé settur fundur þó ekki sé meiri hluti þingmanna í þingsalnum enda segir hvergi í þingsköpum að svo skuli gert.