Innflutningur dýra

Fimmtudaginn 16. nóvember 2000, kl. 16:57:21 (1910)

2000-11-16 16:57:21# 126. lþ. 26.5 fundur 154. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv., JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 126. lþ.

[16:57]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég fagna síðustu yfirlýsingu hæstv. landbrh. þar sem hann lét orð falla varðandi einangrunarstöðina í Hrísey. Ég tel einmitt, eins og yfirlýsing hans birtist þar, að hún sé í þeim anda sem við báðir munum geta unnið eftir og ég heiti því, herra forseti, að veita liðsinni mitt til þess að einangrunarstöðin í Hrísey geti eflst og verið fær um að takast á við þessi verkefni eins og hæstv. ráðherra lagði áherslu á í lok andsvars síns.