Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Vegna orða hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur mun forseti verða við því og kalla þingmenn til fundar í hádegishléi. Ráð var fyrir því gert vegna þingflokksfunda að það yrði heldur í lengra lagi og hæfist um hálfeittleytið. Eigum við ekki að miða við að matarhlé hefjist 12:20? Þá gefst okkur tækifæri til fundahalda áður en þingflokksfundir hefjast. Fundi verði síðan fram haldið klukkan 13:30 eins og miðað var við. Í þessu ljósi vænti ég þess að umræðan geti hafist án frekari athugasemda.