Fjárlög 2001

Föstudaginn 08. desember 2000, kl. 12:19:34 (3030)

2000-12-08 12:19:34# 126. lþ. 44.13 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, KolH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 126. lþ.

[12:19]

Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Mér nægir ekki þetta svar. Ég vil fá að heyra hvers vegna sérstakt yfirlit nr. 20, sem fylgir viðkomandi fjárlagalið, hefur að geyma nafngreinda fjárveitingu upp á 2 millj. kr. til Umhverfisverndarsamtaka Íslands. Hvers vegna fer hv. fjárln. ekki að óskum hv. umhvn. þess efnis að Umhverfisverndarsamtök Íslands fái stuðning ásamt Náttúruverndarsamtökum Íslands, sem eins og Umhverfisverndarsamtökin sótti um stuðning til fjárln.? Ég vil fá faglega útskýringu hv. fjárln. á því hvers vegna Umhverfisverndarsamtökin njóta hér forréttinda umfram Náttúruverndarsamtök Íslands.