Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Út af orðum hv. þm. er ekkert launungarmál að ég hef orðið fyrir vonbrigðum með Norsk Hydro. Það að þeir skuli hafa komið fram með þessum hætti á þessu stigi málsins kemur okkur í opna skjöldu. (SJS: Erfiðir þessir Norðmenn.) Það er tilfellið, sem sagt var utan úr sal, að þeir geta verið erfiðir þessir Norðmenn.