Almenn hegningarlög og lögreglulög

Föstudaginn 19. apríl 2002, kl. 13:57:11 (7888)

2002-04-19 13:57:11# 127. lþ. 123.16 fundur 494. mál: #A almenn hegningarlög og lögreglulög# (sendierindrekar, grímubann, starfslok lögreglumanna o.fl.) frv. 56/2002, Frsm. ÞKG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 127. lþ.

[13:57]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd allshn. fyrir nál. um frv. til laga um breyting á almennum hegningarlögum og lögreglulögum.

Í meginatriðum eru lagðar til fjórar breytingar í þessu frv. dómsmrh. Í fyrsta lagi er lagt til að við almenn hegningarlög bætist ákvæði sem veitir aukna refsivernd gegn ógnun eða valdbeitingu gagnvart erlendum sendierindrekum hér á landi, svo og gegn eignaspjöllum sem unnin eru á sendiráðssvæði eða hótunum um að fremja slík spjöll. Í öðru lagi er lagt til að bætt verði ákvæðum í lögreglulög sem annars vegar auka heimildir lögreglu til að halda uppi allsherjarreglu á opinberum fundum með því að lögregla geti bannað mönnum að hylja andlit sitt í því skyni að hindra að kennsl verði borin á þá þegar uggvænt þykir að óspektir verði á fundinum. Hins vegar er um að ræða ákvæði sem kveður á um að starfslokaaldur lögreglumanna verði lækkaður í 65 ár. Loks eru lagðar til breytingar á lögreglulögunum varðandi val nema í Lögregluskóla ríkisins.

Nefndin ræddi eitt og annað í sambandi við þessar breytingar, m.a. möguleika á fjarnámi við Lögregluskóla ríkisins fyrir einstaklinga víðs vegar á landinu en sú umræða leiddi í ljós að slík aðferð hentar lögreglunámi vel að undanskildu grunnnámi vegna sérstöðu þess.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Nefndin skoðaði sérstaklega heimild lögreglu til að banna manni að hylja andlit sitt með málningu. Telur nefndin nauðsynlegt að slík heimild sé fyrir hendi. Hins vegar lítur hún svo á að önnur förðun eða notkun aukahluta geti einnig leitt til breytinga á andlitsdráttum og andlitsfalli þannig að ógerlegt sé að bera kennsl á menn og leggur því til breytingu þar að lútandi.

Nefndin telur jafnframt rétt að heimildir lögreglu skv. 3. mgr. 15. gr. lögreglulaga til að grípa til nauðsynlegra ráðstafana vegna óhlýðni á fyrirmælum hennar skuli einnig ná til nýja ákvæðisins í 2. gr. frv. Þá leggur nefndin til að lögreglumönnum verði veittur lengri frestur en frv. gerir ráð fyrir til að ákveða hvort þeir nýti sér nýjar reglur frv. eða eldri reglur um starfslok.

Undir þetta álit skrifa hv. þm. sem sitja í allshn. en Guðrún Ögmundsdóttir og Dóra Líndal Hjartardóttir rituðu undir það með fyrirvara.