Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vill geta þess að ráðgert var að þessi fundur stæði eigi lengur en til klukkan sjö. Nú er klukkan orðin sjö og eru þrír hv. þm. á mælendaskrá í 9. dagskrármáli. Forseti mun freista þess að ljúka umræðu um málið þannig að það megi fara til nefndar og er því ekki gert ráð fyrir að mikið fleiri bætast á mælendaskrá í þessu máli.