Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég vil benda hv. þm. á að við erum ekki í hlutafélagi. Þetta er löggjafarsamkunda þjóðarinnar. Herra forseti, ég er svo aldeilis... (KLM: ... bandarískt fyrirtæki.)
Já, ég var einmitt að gagnrýna það hvernig menn haga störfum löggjafarsamkundunnar. Hún á ekki að vinna eins og amerískt fyrirtæki, eins og amerískt hlutafélag. Það er það sem ég er að gagnrýna, þetta er ekki hlutafélag. Þetta er löggjafarsamkunda íslensku þjóðarinnar.