Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Vegna lokaorða hæstv. ráðherra þá er nú reynslan ólygnust í þessum efnum. Það nægir að vísa til þess dæmis sem ég hef farið hér orðum um.
En, herra forseti, það tekur því ekki að vera að standa í þessu orðaskaki við hæstv. ráðherra. Hann er náttúrlega röklaus með öllu í þessu máli og ég mun auðvitað grípa til þess ráðs seinna í dag að láta dreifa frumvarpi þar sem þessum málum er komið í skikk. Hann er greinilega ófær um það sjálfur.