Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Það er alveg með ólíkindum, herra forseti, að hv. þm. sem sjálf hefur verið félmrh. skuli halda þessu fram. Það er alveg ljóst að Útlendingaeftirlitið heyrir undir dómsmrn. og málefni þessara einstaklinga heyra undir dómsmrn. þangað til þeir eru búnir að fá dvalarleyfi hér. Ég get ekki gripið fram fyrir hendurnar á dómsmrn. enda reikna ég með að þessu máli sé sinnt eðlilega af hendi þess ráðuneytis.
Ég geri ráð fyrir að kennslumál þessara barna heyri undir menntmrn. En eins og ég sagði áðan stendur ekki á okkur að ræða þetta vandamál.