Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég held ekki að hægt sé að lesa það út úr þessari 4. gr. frv. sem hv. þm. sagði. En ég geri nú ráð fyrir að almenn túlkun á lögunum í heild, eins og þau eru núna og ekki er verið að breyta með þessu, sé sú að það falli ekki undir verksvið lífeyrissjóðanna að stofna banka.