Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Suðvest., Rannveigu Guðmundsdóttur, dags. 2. mars:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Jón Kr. Óskarsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan en 1. og 2. varamaður á listanum sitja nú á Alþingi.``
Kjörbréf Jóns Kr. Óskarssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.