2004-03-23 17:39:33# 130. lþ. 88.11 fundur 612. mál: #A staðfesting samninga um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen# þál., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 130. lþ.

[17:39]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. á þskj. 1146, um till. til þál. um staðfestingu samninga milli Íslands, Grænlands/Danmerkur og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen o.fl.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirtalda samninga um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen o.fl.: 1. samning milli Íslands, Grænlands/Danmerkur og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen sem gerður var í Reykjavík 8. júlí 2003, 2. samning milli Íslands og Grænlands/Danmerkur um gagnkvæmar veiðar í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands sem gerður var í Reykjavík 8. júlí 2003, og 3. tvíhliða samkomulag milli Íslands og Noregs sem gert var í Reykjavík 9. júlí 2003.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti, Kolbein Árnason frá sjávarútvegsráðuneyti og Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þá hélt nefndin fund með sjávarútvegsnefnd Alþingis þar sem farið var ítarlega yfir alla efnisþætti málsins að viðstöddum fulltrúum frá utanrrn., sjútvrn. og Landssambandi íslenskra útvegsmanna.

Gildandi loðnuveiðisamningum á hafsvæðinu milli Íslands, Grænlands og Jan Mayen var sagt upp af Íslands hálfu þann 30. október 2002 og féllu þeir úr gildi þann 1. maí í fyrra. Ástæða uppsagnarinnar var sú að ekki höfðu náðst samningar við Noreg um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem ég gerði grein fyrir undir 9. dagskrárlið þessa fundar, og samningarnir hefðu framlengst sjálfkrafa um tvö ár hefði þeim ekki verið sagt upp. Samningar hafa nú tekist um öll þessi atriði. Samningarnir sem nú liggja fyrir eru nánast samhljóða fyrri samningum. Þó er rétt að vekja athygli á því að nú gilda samningarnir aðeins til eins árs í upphafi og framlengjast sjálfkrafa um eitt ár í senn í stað tveggja ára áður. Uppsagnarfrestur er hins vegar sá sami og áður, þ.e. sex mánuðir.

Samningarnir voru undirritaðir í júlí 2003 og telur nefndin að rétt hefði verið að leggja þá fyrir Alþingi strax í upphafi haustþings, en ljóst er að hann kemur mjög seint til efnismeðferðar í þinginu. Utanríkismálanefnd kemst ekki hjá því að gera athugasemd við þennan drátt á málsmeðferðinni eins og í hinum tveimur dagskrármálum þingsins hér á undan.

Hæstv. forseti. Samstaða var um málið í nefndinni og leggur hún til að tillagan verði samþykkt.

Hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. skrifa auk mín hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson, Jónína Bjartmarz, Drífa Hjartardóttir, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon, Einar K. Guðfinnsson og Magnús Stefánsson.