Rannsókn flugslysa

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 16:05:31 (6669)

2004-04-23 16:05:31# 130. lþ. 101.7 fundur 451. mál: #A rannsókn flugslysa# frv. 35/2004, Frsm. GHall
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[16:05]

Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Hér er til umfjöllunar framhaldsnefndarálit um frv. til laga um rannsókn flugslysa frá samgn. Eins og ég gat um í framsögu minni varðandi nefndarálitið eftir 2. umr. þá komu í ljós nokkur atriði sem við þurftum að fjalla betur um. Það hefur verið gert og sett fram í framhaldsnefndaráliti með tillögu um breytingu frá samgn.

Nefndin ákvað að taka málið til frekari umfjöllunar eftir að því hafði verið vísað til 3. umr.

Nefndin ræddi á fundi sínum tvö atriði sem hún fékk fyrirspurnir um eftir að hún hafði mælt fyrir nefndaráliti í 2. umr. Það fyrra var verkaskipting innan rannsóknarnefndar flugslysa og samstarf nefndarinnar og forstöðumanns og þá sérstaklega hvað varðar störf á slysavettvangi og skýrslugerð. Það var niðurstaða nefndarinnar að ákvæði frumvarpsins eins og þau eru eftir 2. umr. séu nægilega skýr hvað þetta varðar og veiti rannsóknarnefndinni jafnframt nokkurt svigrúm til að móta störf sín. Þannig útiloki ákvæði frumvarpsins ekki að nefndarmenn fari á vettvang og taki þátt í rannsókn þó svo að forstöðumaður gegni starfi rannsóknarstjóra.

Síðara atriðið varðar vörslu gagna. Nefndin leggur til breytingu á frumvarpinu þannig að rannsóknarnefnd flugslysa verði ekki heimilt að láta loftfar eða hluta þess af hendi nema að teknu tilliti til rannsóknarhagsmuna sinna og annarra, svo sem lögreglu. Nefndin leggur ekki til ákveðin tímamörk varðandi vörslu þessara gagna heldur vill nefndin með breytingunni leggja áherslu á að gögnum verði ekki eytt eða þau látin af hendi nema að vel athuguðu máli.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri breytingu:

,,1. mgr. 15. gr. orðist svo: Rannsóknarnefnd flugslysa ákveður að teknu tilliti til rannsóknarhagsmuna sinna og lögreglu, sbr. 2. mgr. 2. gr., sem og annarra, hvenær hún lætur af hendi loftfar eða hluta þess, svo og önnur gögn sem hún hefur tekið í sína vörslu.``

Hv. þm. Jóhann Ársælsson skrifar undir álitið með fyrirvara og áskilur sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið.

Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir álit þetta rita auk mín: hv. þm. Guðjón Hjörleifsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Birkir J. Jónsson, Jóhann Ársælsson, með fyrirvara, Einar Már Sigurðarson og Guðjón A. Kristjánsson.