Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil ítreka það sem ég áður sagði, hv. þingmaður, að Alþingi vísaði þessu máli til allshn. og bæði meiri og minni hluti allshn. hafa sent frá sér nefndarálit sem staðfestir að rétt sé að taka málið fyrir. (Gripið fram í: ... nefndarálit.) Það heitir minnihlutaálit þá, hv. þingmaður.