Aflétting veiðibanns á rjúpu

Þriðjudaginn 04. nóvember 2003, kl. 19:43:14 (1195)

2003-11-04 19:43:14# 130. lþ. 20.14 fundur 154. mál: #A aflétting veiðibanns á rjúpu# þál., HHj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 130. lþ.

[19:43]

Helgi Hjörvar (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég bið hæstv. umhvrh. að virða mér það til vorkunnar að beina spurningum um þetta efni til ráðherrans. Það hefði auðvitað verið æskilegt að geta beint þeim til hv. þm. Sigríðar Önnu Þórðardóttur við þessa umræðu og ég hefði talið eðlilegt að formaður umhvn. væri við umræðuna til svara um efni málsins. En mér finnst mikilvægt vegna þess hve óljós skilaboð ríkisstjórnin sendir í þessu efni að það séu tekin af öll tvímæli um það að ákvörðun umhvrh. til þriggja ára standi og að ríkisstjórnin, bæði þeir sem í henni sitja nú og þeir sem tilkynnt hefur verið um að sitja muni í ríkisstjórninni, styðji ákvörðunina.