Lax- og silungsveiði o.fl.

Fimmtudaginn 06. nóvember 2003, kl. 12:06:44 (1311)

2003-11-06 12:06:44# 130. lþ. 22.6 fundur 111. mál: #A lax- og silungsveiði o.fl.# (staðfesting bráðabirgðalaga) frv. 116/2003, Frsm. meiri hluta DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 130. lþ.

[12:06]

Frsm. meiri hluta landbn. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil bara endurtaka það að frv. var ekki hafnað heldur var það ekki afgreitt. Og þannig er það nú. Mér finnst ágætt af hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni að sýna öll þau skjöl sem liggja hér fyrir nefndinni, málið er búið að fá geysilega góða yfirferð, við höfum fengið feiknarlega miklar og fræðilegar álitsgerðir og ég held að við höfum unnið þetta mál mjög vel.

Ég vil að lokum þakka nefndarmönnum fyrir gott samstarf í nefndinni.