Fundargerð 135. þingi, 110. fundi, boðaður 2008-05-27 19:50, stóð 19:50:07 til 21:49:29 gert 28 8:21
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

110. FUNDUR

þriðjudaginn 27. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum:

Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð töluðu í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð Árni Þór Sigurðsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Þuríður Backman, 8. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokks voru: Í fyrstu umferð Geir H. Haarde forsætisráðherra, í annarri Guðfinna S. Bjarnadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þeirri þriðju Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, í annarri umferð Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þriðju umferð Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn talaði í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Jón Magnússon, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

[19:50]

[21:48]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 21:49.

---------------