2. FUNDUR
miðvikudaginn 12. sept.,
kl. 7.50 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 12. september, kl. 19.50. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Lúðvík Geirsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Mörður Árnason, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis.
Fyrir Hreyfinguna töluðu í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í annarri Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.
Síðastir í fyrstu umferð töluðu þingmenn utan þingflokka: Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis.
Þingmálaskrá:Fundi slitið kl. 22:16.
---------------