Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 538 — 2. mál.
Leiðréttur texti.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025.
Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Inngangur.
Annar minni hluti telur ekki ráðlegt að þær skattahækkanir sem boðaðar eru í frumvarpinu nái fram að ganga. Með frumvarpinu er lögð til hækkun á kolefnisgjaldi, olíugjaldi og kílómetragjaldi, almennu og sérstöku bensíngjaldi, bifreiðagjaldi og gjaldi af áfengi, tóbaki og nikótínvörum.
Annar minni hluti telur einfalt skattkerfi og lága skatta grunnforsendu öflugs efnahagslífs. Skattkerfið á ekki að draga úr framtaki fólks og fyrirtækja heldur ýta undir nýsköpun og vöxt atvinnulífsins en það er einmitt þannig sem við stöndum vörð um velferð í landinu. Að stjórnvöld tefli samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs í tvísýnu með því að hækka skatta þannig að íslensk fyrirtæki búi við mun lakara rekstrarumhverfi en þekkist í samkeppnislöndum okkar gengur þvert á markmið um aukna verðmætasköpun og velferð.
Þegar hægja tekur á í hagkerfinu og ýmis teikn eru á lofti um alvarlega stöðu helstu atvinnugreina þjóðarinnar er ekki rétti tíminn til að draga enn frekar úr þrótti fyrirtækja í landinu með stóraukinni skattlagningu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd lögðu fram raunhæfar tillögur að hallalausum fjárlögum við 2. umræðu um frumvarp til fjárlaga á yfirstandandi löggjafarþingi en þær tillögur voru allar felldar af hálfu stjórnarmeirihlutans. Stefna ríkisstjórnarinnar er sú að auka útgjöld og standa straum af því með skatta- og gjaldahækkunum, þrátt fyrir tekjuauka langt umfram spár á þessu ári, og greiða ekki niður skuldir. Stefna þeirra er með öðrum orðum að seilast dýpra ofan í vasa fólks og fyrirtækja með því að hækka skatta og opinberar álögur um 30 milljarða króna. 2. minni hluti lýsir sig ósammála þeirri stefnu.
Skaðleg áhrif aukinnar skattheimtu.
Það er staðreynd að íþyngjandi álögur og háir skattar draga úr viðnámsþrótti atvinnulífsins, samkeppnishæfni fyrirtækja og fjárfestingargetu, svo sem í nýsköpun. Hafa viðlíka áhrif skattlagningar komið skýrt fram við nýlega álagningu innviðagjalds á skemmtiferðaskip og hækkun kolefnisskatta. Eru það breytingar sem hafa dregið verulega úr skipakomum til landsins ásamt því að fjöldi skipa hefur farið að fordæmi Landhelgisgæslu Íslands og siglir nú til Færeyja eftir eldsneyti þar sem álögur á eldsneyti eru mun lægri en hér á landi. Annað og nýlegra dæmi eru fyrirhugaðar hækkanir á vörugjöldum á bifreiðar, sem útfærðar eru í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp það sem hér er til umræðu, og hafa sett af stað umfangsmikla hegðunarbreytingu bifreiðaumboða og ökutækjaleigna. Fyrirtækin hafa brugðist við þessum áformum ríkisstjórnarinnar með því að flytja inn allar þær bifreiðar sem mögulegt er fyrir áramót í þeim tilgangi að verja sig og kaupendur fyrir fyrirhuguðum skattkerfisbreytingum. Engum dylst að um mikið óhagræði er að ræða.
Skattahækkanir sem draga úr framtakssemi einstaklinga og andrými fyrirtækja til vaxtar stuðla að því að kakan minnkar og minna verður til skiptanna. Afleiðingin er samdráttur í efnahagslífinu og sömuleiðis í tekjum ríkissjóðs þegar fram líða stundir. Öflugt og vaxandi efnahagslíf er forsenda áframhaldandi uppbyggingar íslensks velferðarsamfélags.
Fjárlögin.
Þrátt fyrir ítrekuð loforð formanna Samfylkingarinnar og Viðreisnar um að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning og venjulegt fólk í landinu hefur ríkisstjórnin nú lagt til verulegar skattahækkanir, ýmist á almenning eða fyrirtæki í fyrsta frumvarpi hennar til fjárlaga sem og öðrum fjárlagatengdum málum. Stefna ríkisstjórnarinnar virðist raunar fyrst og fremst felast í því að hækka skatta hvar sem til þess gefst færi. Til stendur að hækka skatta á ökutæki og eldsneyti, afnema samsköttun hjóna og sambúðarfólks, leggja kílómetragjald á öll ökutæki, hækka jöfnunargjald raforku og hækka krónutölugjöld um 3,7%. Alls nema boðaðar skattahækkanir 27,9 ma. kr. Auk þess munu boðaðar skattahækkanir á leigutekjur hafa í för með sér hærra leiguverð til handa þeim sem eru á leigumarkaði. Enn fremur hefur ríkisstjórnin boðað skatt á streymisveitur og innheimtu náttúru- og innviðagjalds á ferðamannastöðum í eigu ríkisins.
Breytingartillögur.
Annar minni hluti gagnrýnir harðlega áform meiri hlutans um óhóflegar skattahækkanir og leggur fram nokkrar tillögur að breytingum.
Í breytingartillögu sem lögð var fram við 1. umræðu (sjá þskj. 256) er lagt til að fallið verði frá því að afnema heimild hjóna og sambúðarfólks til samnýtingar á skattþrepum enda sé það ekkert annað en aðför að fjölskyldunum í landinu. Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins og tilgangur breytingartillögunnar er sá að tryggja að hjón og sambúðarfólk geti áfram samnýtt skattþrep. Óumdeilt er að samnýtingin léttir undir með fjölskyldum og veitir þeim svigrúm til að takast á við áskoranir hversdagsins. Jafnframt er lagt til að einstaklingar geti áfram nýtt hluta ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts og að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á húsnæðislán verði framlengd um eitt ár fyrir alla að svo stöddu. Þá er lagt til að stimpilgjöld af kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumin.
Ljóst er að kílómetragjald og hækkun vörugjalda af ökutækjum mun leiða til færri nýskráninga ökutækja á næsta ári og frekari verðhækkana á útleigu ökutækja. Ljóst er að samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar mun skaðast mjög ef af þessum áformum ríkisstjórnarinnar verður með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á fjölda ferðamanna og verðmætasköpun hér á landi í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Í umsögn SVÞ kemur fram að það hljóti að teljast einsdæmi að ráðist sé í svo viðamiklar breytingar á skattkerfi með svo þröngan skattstofn skömmu fyrir áramót og hér er gert. Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld gæti að því að fyrirtæki í landinu búi við fyrirsjáanleika, sérstaklega gagnvart svo viðamiklum breytingum, ella verði neikvæð áhrif breytinganna mun meiri. Skattahækkunin sem boðuð er með hækkun vörugjalda nemur t.d. 7,5 milljörðum kr. á ári, eða hátt í 67% hækkun tekna af vörugjöldum milli ára og samsvarar 19% hækkun tekna af skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Ef tekið er tillit til tekjuáhrifa frumvarps til laga um kílómetragjald er heildarskattahækkun á ökutæki og eldsneyti um 11 milljarðar króna milli ára.
Hærri skattar hafa áhrif á verð til hækkunar sem síðan hefur áhrif á eftirspurn eftir þeirri vöru sem um ræðir. Áhrif skattahækkana á verð og eftirspurn sjást nú glögglega í þeirri tölfræði sem liggur fyrir um sölu nýrra bifreiða á síðustu mánuðum, þar sem fólk og fyrirtæki keppast við að tryggja sér eintak á „gamla verðinu“, þ.e. áður en skattahækkanir koma til framkvæmda. 2. minni hluti lýsir áhyggjum af áhrifum þeirra miklu skattahækkana sem boðaðar eru í frumvarpinu á verðbólgu í landinu. Í því sambandi má nefna að vísitala neysluverðs er þannig samsett að verð nýrra bifreiða hefur talsverð áhrif á vísitöluna. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að krónutölugjöld, svo sem áfengisgjöld, hækki um 3,7% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins þrátt fyrir að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sé 2,5%. Að mati 2. minni hluta mun þessi ákvörðun stuðla að enn meiri verðbólgu.
Öðrum minni hluta er nokkur vandi á höndum að skilja rökstuðning í nefndaráliti meiri hlutans fyrir hækkun skatta á bifreiðar. Þar kemur fram að hvort tveggja eigi við að markmiðið sé auknar tekjur ríkissjóðs en einnig eigi breytingarnar að virka sem hvati til orkuskipta í samgöngum þannig að fleiri kaupi hreinorkubíla, sem skili minni skatttekjum í ríkissjóð. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Annaðhvort aukast skatttekjur við þær breytingar sem meiri hlutinn hyggst innleiða eða ekki.
Annar minni hluti styður breytingartillögu meiri hlutans varðandi hækkun sóknargjalda en telur þó að rétt hefði verið að verðbæta fjárhæðina. Sérstaklega verður að hrósa viðsnúningi Viðreisnar í málinu sem sá sér ekki fært að styðja breytingartillögu Sjálfstæðisflokksins um hækkun sóknargjalda í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Varnaðarorð Sjálfstæðismanna hafa þegar borið árangur, meiri hlutinn hefur séð að sér og dregið til baka áform sín um stórfelldar breytingar á erfðafjárskatti sem voru bæði skaðlegar og illa útfærðar. Þeim viðsnúningi ber að fagna en betur má ef duga skal og vonast 2. minni hluti til að fallist verði á þær breytingartillögur sem lagðar voru fram af hálfu fulltrúa 2. minni hluta við 1. umræðu (sjá þskj. 256). Þá telur 2. minni hluti rétt að fagna því að meiri hlutinn hefur hlustað á gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokksins varðandi óhóflegar álögur á ökutæki og fallið frá þeim að hluta, svo sem varðandi sérsmíðaðar keppnisbifreiðar og keppnisbifhjól sem og fjórhjól, dráttarvélar og tengiltvinnbíla.
Afnám stimpilgjalda við kaup einstaklinga á íbúðarhúsnæði.
Mikilvægt er að bregðast við þeirri stöðu sem ríkir nú á húsnæðismarkaði með aðgerðum sem auðvelda fólki að eignast íbúðarhúsnæði. Því hefur 2. minni hluti lagt áherslu á að stimpilgjald vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumið. Stimpilgjald, sem er hreinn og beinn skattur á fasteignaviðskipti, hækkar viðskiptakostnað, dregur úr framboði og rýrir hlut kaupenda og seljenda.
Samantekt og lokaorð.
Allar þær skattahækkanir sem ríkisstjórnarflokkarnir leggja hér til þýða að seilast á dýpra í vasa skattgreiðenda, þ.e. venjulegs fólks, fjölskyldna og fyrirtækja. Ríkisstjórnarflokkarnir velja að fara leið skattpíningar þar sem þeir geta ekki komið sér saman um hagræðingaraðgerðir og treysta sér ekki heldur til að draga úr útgjaldavexti ríkisins.
Alþingi, 12. desember 2025.
| Vilhjálmur Árnason, frsm. |
Hildur Sverrisdóttir. |