Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 547  —  257. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Félagi atvinnurekenda, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, KPMG, Deloitte, Samtökum atvinnulífsins, SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, Bændasamtökum Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum, sýslumannaráði og Hagsmunasamtökum heimilanna.
    Nefndinni bárust 18 umsagnir, tvö minnisblöð frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eitt minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
Lækkun á frítekjumarki fjármagnstekjuskatts af leigutekjum.
    Í frumvarpinu er lagt til að frítekjumark tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 50% í 25%. Verði frumvarpið að lögum mun því skattskyldur hluti tekna af útleigu íbúðarhúsnæðis hækka í 75% og virk skattbyrði leigutekna þar með hækka úr 11% í 16,5%.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingin sé liður í þeim áformum að draga úr skattalegum hvata einstaklinga til að beina sparnaði í íbúðarhúsnæði umfram aðrar fjárfestingar og jafnframt að stuðla að auknu hlutleysi við skattlagningu leigutekna. Skattalegir hvatar sem eru til þess fallnir að beina sparnaði fólks í auknum mæli í átt að íbúðafjárfestingu umfram aðra fjárfestingu geta m.a. leitt til hærra íbúðaverðs. Með því að lækka afslátt leigutekna má draga úr skattalegum ávinningi einstaklinga af því að fjárfesta í íbúðarhúsnæði í því skyni að leigja húsnæðið út. Ætlunin er að beina sparnaði fólks frekar í aðrar fjárfestingar sem styðja betur við verðmætasköpun.
    Í umsögnum og fyrir nefndinni kom fram að skattbreytingin myndi draga úr framboði leiguíbúða og skila sér í hærra leiguverði til leigjenda. Einnig var bent á að í greinargerð með frumvarpinu hafi áhrifin af breytingunni á vísitölu neysluverðs ekki verið metin að fullu að því leytinu til að samningar einstaklinga og leigufélaga eru nær eingöngu teknir með við útreikning á vísitölu neysluverðs en óhagnaðardrifin leigufélög eru þar undanskilin. Skattbreytingin muni því leiða til meiri hækkunar á vísitölu neysluverðs en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Þá var bent á að hækkun skatts á leigugreiðslur myndi leiða til aukningar á svartri leigustarfsemi til að koma leigugjaldinu undan skattheimtu.
    Að mati meiri hlutans er breytingin sem lögð er til með frumvarpinu hófleg en þó vel til þess fallin að beina sparnaði fólks til annarra fjárfestinga en íbúðarhúsnæðis. Meiri hlutinn leggur áherslu á að lagt verði mat á breytinguna í samhengi við þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað og vinnur nú að í húsnæðismálum. Líkt og fram kemur í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis um frumvarpið er eðlilegast að áætla að breytingin muni einungis leiða til um 1% hækkunar leiguverðs að meðaltali. Þau áhrif koma líklegast að mestu fram um einu ári eftir að breytingin tekur gildi. Breytingin muni á þeim tíma hafa takmörkuð áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs enda hefur hún aðeins bein áhrif á hluta leigusala. Auk þess er ekki gert ráð fyrir að margir leigusalar muni í kjölfar breytinganna færa leiguíbúðir sínar í atvinnurekstur en verði reyndin sú að þeir verði fleiri en færri má gera ráð fyrir að áhrifin verði minni.

Blandaðar tollvörugeymslur.
    Með frumvarpinu eru lagðar til auknar kröfur á þá aðila sem reka tollfrjálsa verslun og hyggjast selja farþegum og áhöfnum millilandafara við komu til landsins gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995. Skv. 15. gr. frumvarpsins munu rekstraraðilar tollfrjálsrar verslunar þurfa að uppfylla skilyrði um geymslusvæði sem kveðið er á um í 5. tölul. 1. mgr. 91. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingin sé lögð til í þeim tilgangi að styrkja enn frekar stoðir eftirlits tollyfirvalda með innheimtu gjalda samkvæmt lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl. hjá tollfrjálsum verslunum.
    Nefndin fjallaði um þær kröfur sem gerðar eru til rekstraraðila tollfrjálsra verslana og staldraði einkum við tilvísun í frumvarpinu til 2. tölul. 1. mgr. 91. gr. tollalaga, þar sem það er gert að skilyrði fyrir leyfisveitingu að stjórnarmenn rekstraraðilans megi ekki hafa hlotið dóm fyrir brot á tollalögum eða fyrir fíkniefnabrot. Vísað er til þessa hæfisskilyrðis víða í tollalögum þar sem það er gert að skilyrði fyrir starfsleyfi hjá nokkrum ólíkum rekstraraðilum sem eiga það sammerkt að vera vörsluhafar ótollafgreiddra vara. Skilyrðið hefur staðið svo til óbreytt í tollalögum frá upphafi en í umfjöllun um skilyrðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að tollalögum kemur fram að handhafar starfsleyfis séu vörsluhafar ótollafgreiddra vara og beri ríkar skyldur samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Því felist í skilyrðinu eðlileg krafa til stjórnenda tollvörugeymslna, sem annast mikilvægt hlutverk í rekstri sínum og er tilgangur þess sá að standa vörð um tekjur ríkissjóðs og þar með vernda hagsmuni samfélagsins og almennings.
    Að mati meiri hlutans er varhugavert að gera breytingar á umræddu hæfisskilyrði, einkum ef það er gert hjá tollfrjálsum verslunum einum starfsleyfishafa. Í ljósi þess að umrætt hæfisskilyrði hefur staðið óbreytt frá gildistöku tollalaga vill meiri hlutinn beina því til fjármála- og efnahagsráðherra að rýna hvort þeir verndarhagsmunir sem búi því að baki séu enn til staðar og hvort þeir kalli í öllum tilvikum á að stjórnarmenn megi ekki hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða fíkniefnabrota. Í þeirri rýni yrði litið til allra ákvæða tollalaga þar sem vísað er í umrætt hæfisskilyrði og það athugað hvort gildandi ákvæði standist að öllu leyti kröfur um meðalhóf, með það fyrir augum hvort tilefni sé til að bregðast við.

Heimild Náttúruhamfaratryggingar Íslands til að innheimta iðgjöld með álagi ef vátryggingarfjárhæð fer upp fyrir tilgreind viðmiðunarmörk.
    Í 24. og 25. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992. Þær fela í sér nýjar heimildir stofnunarinnar til að bæta álagi við iðgjöld vegna eigna atvinnurekenda ef vátryggingarverðmæti þeirra fer upp fyrir ákveðin viðmiðunarmörk. Í umsögn Bændasamtaka Íslands komu fram sjónarmið um að Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) muni með þessu fá heimild til að innheimta álag á iðgjöld vegna muna í atvinnustarfsemi án þess að fyrir liggi skýrt mat á áhrifum eða greining á því hvaða muni falli undir ákvæðið. Álagið sé auk þess matskennt og huglægt og skapi óvissu um framkvæmd ákvæðisins. Sömuleiðis kom fram í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu að mikilvægt sé að NTÍ hafi frumkvæði að því að láta þá aðila sem sæta álagi vita áður en áhættuálagið verði lagt á þar sem það muni annars að ósekju bitna á vátryggingarfyrirtækjum sem innheimta iðgjöldin. Einnig sé mikilvægt að vátryggingarfyrirtækin verði upplýst hverju sinni með nægjanlegum fyrirvara um hvaða aðilar þurfi að greiða álag. Jafnframt sé það ekki skýrt hvort áhættuálagið verði hækkað á núgildandi samninga eða taki einungis gildi þegar nýir samningar eru gerðir.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis kemur fram að skv. 25. gr. frumvarpsins verði stjórn NTÍ heimilt að innheimta iðgjöld af munum til notkunar í atvinnustarfsemi með álagi ef vátryggingarfjárhæð muna á vátryggingarstað nemur hærri fjárhæð en 5% af greiðsluskyldu stofnunarinnar. Í minnisblaðinu segir að sú fjárhæð standi nú í um 12 milljörðum kr. Jafnframt er tekið fram að með munum sé átt við í þessu tilviki bæði húseignir og lausafé og er það sú hugtakanotkun sem notuð hefur verið í lögum um NTÍ. Þá sé í frumvarpinu með hlutlægum hætti gert skýrt við hvaða aðstæður munir geti sætt álagi. Í minnisblaðinu er tiltekið að áhrif á rekstrarhæfi fyrirtækja verði almennt mjög takmörkuð þar sem viðmiðið leiði til þess að álagið verði eingöngu lagt á fáa, stóra aðila sem ná tilgreindum viðmiðunarmörkum. Meiri hlutinn tekur undir þá afstöðu ráðuneytisins að fyrir vikið sé ekki unnt að fallast á athugasemdir um að ekki liggi fyrir skýrt mat á áhrifum eða greining á því hvaða munir falli undir ákvæðið.
    Auk þess kemur fram í minnisblaðinu að verklag vegna fyrirhugaðra breytinga hafi ekki verið útfært endanlega en gert sé ráð fyrir því að NTÍ muni upplýsa þá sem sæta álagi einu sinni á ári og að sú þá fjárhæð sem verði til viðmiðunar, þ.e. 5% af greiðsluskyldu stofnunarinnar, verði aðgengileg á heimasíðu hennar. Jafnframt segir í minnisblaðinu að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að láta innheimtu gjaldsins fara fram í gegnum vátryggingafélög en komi til þess verði haft samráð við þau. NTÍ muni afla sérstakra endurtrygginga fyrir stórar áhættur og upplýsa vátryggða með skriflegum hætti um viðbótarkostnað vegna þeirra. Vátryggðum verði gefinn kostur á að taka afstöðu til þess hvort þeir vilji una álaginu eða hafna því. Þá bendir meiri hlutinn á að ekki hafi verið ákveðið frá hvaða tíma álagið verði lagt á en stefnt sé á að gera það tímanlega fyrir næsta gjalddaga hvers viðskiptavinar. Að lokum sé ekki gert ráð fyrir því að breytingarnar muni ná til núgildandi samninga. Meiri hlutinn tekur undir framangreind áform og undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til viðkomandi aðila.

Breytingartillögur.
Skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa.
    Með 1. og 6. gr. frumvarpsins er lagt til að framlengja gildistíma úrræðis um skattfrádrátt til hlutabréfakaupa um tvö ár. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir því að einstaklingar geti nýtt sér frádrátt frá tekjuskattsstofni, að viðbættum fjármagnstekjum, vegna fjárfestinga á árunum 2016–2024.
    Í umsögn Samtaka iðnaðarins er bent á að í framkvæmd hafi félög þurft að sækja um staðfestingu til Skattsins áður en hlutafjáraukning fari fram og hefur sú staðfesting verið forsenda skattfrádráttar. Nái frumvarpið fram að ganga muni úrræðið því ekki nýtast fyrir rekstrarárið 2025 enda hafa engin félög sótt um og engin staðfesting verið veitt vegna ársins.
    Meiri hlutinn áréttar að áður en hlutafjáraukning fer fram verður félag að fá staðfestingu ríkisskattstjóra á því að öll skilyrði 12. tölul. 3. mgr. B-liðar 30. gr. tekjuskattslaga séu uppfyllt. Því hafi aðilar ekki haft væntingar til þess að fá hlutabréfaafslátt vegna fjárfestinga á árinu 2025 enda hafi hann runnið sitt skeið í álagningu 2025 vegna fjárfestingarársins 2024. Að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti telur meiri hlutinn ekki góðan brag á því að leggja til breytingu í bráðabirgðaákvæði í þá átt að þrátt fyrir 12. tölul. þurfi félag ekki að afla samþykkis áður en hlutafjáraukning fer fram vegna tekjuársins 2025. Margir hafi eflaust fengið synjun á árinu 2025 og ekki farið í hlutafjáraukningu. Þá má nefna að til að unnt sé að árita upplýsingar á framtöl þurfa gögn um þá sem tóku þátt í hlutafjáraukningu á árinu 2025 að hafa borist Skattinum fyrir 10. janúar 2026 svo unnt sé að árita upplýsingarnar á framtöl, annars flækist framtalsgerð fjölda fólks verulega.
    Í ljósi framangreinds leggur meiri hlutinn til að fella niður framlengingu á gildistíma úrræðisins árið 2025 enda hafi aðilar ekki haft væntingar til þess að fá frádráttinn vegna þess árs. Því leggur meiri hlutinn til að framlengja úrræðið um þrjú ár í staðinn fyrir tvö þannig að úrræðið taki til fjárfestinga á árunum 2026, 2027 og 2028.

Mat á virði hlutabréfa til stofns til erfðafjárskatts.
    Með 11. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögum um erfðafjárskatt sem varða breytt mat á virði eigna til skattstofns erfðafjárskatts. Lagt er til að við ákvörðun erfðafjárskatts skuli land talið fram miðað við markaðsverð nema telja megi að mismunur þess og fasteignamats sé óverulegur. Einnig er lagt til breytt mat á virði eignarhluta í félögum sem ekki eru skráð á skipulögðum markaði. Í þeim tilvikum skuli skattverð miðast við bókfært virði eigin fjár en fasteignir færðar á fasteignamatsverði eins og það er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á dánardegi arfleifanda. Bókfært verð annarra eigna skuli enn fremur færa til markaðsverðs, enda mismunur bókfærðs verðs og markaðsverðs ekki óverulegur. Þá skuli bæta við verðmæti óefnislegra eigna og réttinda sem metin verða til fjár og gefa af sér arð í framtíðinni en óheimilt er lögum samkvæmt að færa til bókar.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar séu lagðar til m.a. í tilefni af nýlegum úrskurði yfirskattanefndar nr. 86/2025 en málið snerist um mat á virði hlutabréfa til fasteignaskatts annars vegar og heimild ríkisskattstjóra til endurákvörðunar hins vegar. Með breytingunni sé ætlunin að taka af allan vafa um að erfðafjárskattur skuli eftir sem áður reiknaður af markaðsverði allra eigna eða verði sem telja megi að endurspegli markaðsverð eða því sem næst. Þannig sé með frumvarpinu stefnt að því að hlutabréf verði metin á grundvelli þeirra eigna sem að baki þeim standa ef ekki er fyrir að fara skráðu markaðsverði, óháð því hvort eignir skuli bókfæra eða ekki.
    Í umsögnum og fyrir nefndinni hefur verið bent á að þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu feli í sér frávik frá helstu meginreglum skattaréttar hér á landi og eru í því sambandi nefnd dæmi úr úrskurða- og dómaframkvæmd. Einnig er bent á að í greinargerð með frumvarpinu sé takmörkuð grein gerð fyrir nauðsyn og áhrifum lagasetningarinnar auk þess sem ekki séu þar færð fyllileg rök fyrir því hvers vegna talið er réttast að bregðast við úrskurði yfirskattanefndar nr. 86/2025 með þessum hætti þegar töluverð sátt hefur verið um uppgjör erfðafjárskatts hér á landi um langt árabil. Verði frumvarpið að lögum muni breytingin leiða til þess að erfingjar þurfi að leggja út í aukinn kostnað við öflun verðmats til að meta virði landareigna og jarða því raunverulegt markaðsverð þeirra sé oft óljóst. Áhrifin muni eflaust verða íþyngjandi fyrir erfingja bújarða, sérstaklega í þeim tilvikum þegar reksturinn er ekki sérlega arðbær. Þá þykir það sæta furðu að vikið sé frá því að miða verðmæti jarða við fasteignamat enda sé það opinbert verðmat byggt á raunverulegum viðskiptum sem eigi að endurspegla markaðsverð.
    Að virtum þeim athugasemdum og röksemdum sem fram hafa komið í umsögnum og fyrir nefndinni er það álit meiri hlutans að ekki sé tímabært að ráðast í þær breytingar á lögum um erfðafjárskatt sem lagðar eru til í frumvarpinu. Að mati meiri hlutans er brýnt að ráðherra taki málið til ítarlegri skoðunar og meti þau áhrif sem breytingarnar kunna að hafa á fjárhagslega stöðu erfingja, kostnað félaga og afkomu ríkissjóðs.

Verndarráðstafanir.
    Í 16.–19. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á XVIII. kafla tollalaga um undirboðs- og jöfnunartolla o.fl. Þær fela í sér að við bætist ákvæði um verndarráðstafanir. Í umsögnum sem nefndinni bárust var goldinn varhugi við tillögum frumvarpsins um verndarráðstafanir þar sem þær kunni að brjóta gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar um bann við framsali skattlagningarvalds.
    Í greinargerð með frumvarpinu er rakið að ákvæði um undirboðs- og jöfnunartolla voru tekin óbreytt inn í núgildandi tollalög frá fyrri tollalögum, nr. 55/1987, en uppruna ákvæðanna má rekja aftur til laga um tollskrá o.fl., nr. 7/1963. Í greinargerð með því frumvarpi sem varð að lögum nr. 7/1963 kom fram að nær öll ríki Vestur-Evrópu hefðu tekið upp í tollalög sín ákvæði um undirboðs- og jöfnunartolla í sambandi við aðild sína að hinu Almenna samkomulagi um tolla og viðskipti (General Agreement on Tariffs and Trade, GATT). Engar skýringar var hins vegar að finna um ástæðu þess að ekki voru jafnframt sett inn ákvæði um verndarráðstafanir, sem þó voru á þessum tíma einnig hluti af GATT-samkomulaginu frá 1947. Að framangreindu virtu tekur meiri hlutinn undir umfjöllun fjármála- og efnahagsráðuneytis í minnisblaði þess um að frumvarpinu sé ekki ætlað að hrófla við fyrirkomulagi þeirra viðskiptavarna sem hafa gilt hér á landi um áratugaskeið. Markmiðið sé að bæta við þriðju stoð kerfisins og tryggja að íslensk löggjöf sé sambærileg við það sem almennt tíðkast í nágrannaríkjum Íslands.
    Meiri hlutinn áréttar að samkvæmt íslenskri stjórnskipun, sbr. 40. gr. og 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, er meginreglan sú að skattamálum skuli skipað með lögum og óheimilt er að fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema. Í dómaframkvæmd hafa dómstólar eigi að síður viðurkennt að ákveðin útfærsla og framkvæmd skattheimtu geti verið í höndum stjórnvalda, svo lengi sem löggjafinn hafi tekið afstöðu til meginatriða skattheimtunnar og sett henni skýran hlutlægan ramma. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis er farið yfir hvernig þessu sé háttað í nágrannaríkjum Íslands. Hjá Evrópusambandinu sé það framkvæmdastjórnin sem grípi til verndarráðstafana fyrir bandalagið, sbr. 3. mgr. 113. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Þá hafi norska þingið ekki aðkomu að ákvörðun um viðskiptavarnir í Noregi, sbr. 13. kafla laga um inn- og útflutning vöru (n. lov om inn- og utføsel av varer). Að lokum sé staðan sú í Bretlandi að utanríkisráðherra (e. foreign secretary) taki ákvörðun um verndarráðstafanir.
    Samkvæmt frumvarpinu er undanfari ákvörðunar ráðherra um verndarráðstafanir niðurstaða umfangsmikillar rannsóknar samráðsnefndar. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis er tekið undir athugasemd sem fram kemur í umsögn Félags atvinnurekenda þess efnis að ráðherra sé ekki skylt að skipa samráðsnefndina. Telur ráðuneytið að skerpa megi á þessari skyldu ráðherra. Meiri hlutinn tekur undir þann skilning og leggur til breytingu á 5. mgr. 133. gr. tollalaga um skyldu ráðherra til að skipa nefndina.

Gjald á nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
    Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, dags. 5. desember sl., kemur fram tillaga að breytingu á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995. Í minnisblaðinu er reifað að í lögunum séu settar takmarkanir á það magn áfengis og tóbaks sem ferðamenn, þ.m.t. þeir sem búsettir eru hér á landi, mega hafa með sér til landsins án þess að greiða af þeim lögbundin gjöld, sbr. 5.–7. tölul. 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 10. gr. laganna. Ráðuneytið bendir á að sams konar ákvæði sé ekki að finna í III. kafla laganna sem fjalli um gjald á nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Það leiði til þess að um gjaldskyldu á þess háttar vörum sem ferðamenn sem búsettir eru hér á landi hafa með sér til landsins til einkanota fari skv. b- og c-lið 2. tölul. 1. mgr. 6. gr. tollalaga. Það þýði að ferðamenn sem búsettir eru hér á landi geti haft með sér til landsins nikótínvörur, einnota rafrettur og vökva til áfyllingar fyrir rafrettur að verðmæti allt að 88.000 kr. án þess að greiða af þeim gjöld samkvæmt lögum nr. 96/1995.
    Við lögfestingu á III. kafla laga nr. 96/1995 fórst fyrir að setja ákvæði um takmarkanir á magni þessara vara sem ferðamenn, þ.m.t. þeir sem búsettir eru hér á landi, mega hafa með sér til landsins eins og gildir um áfengi og tóbak. Meiri hlutinn tekur undir að nauðsynlegt sé að lagfæra það. Leggur meiri hlutinn því til breytingu á 10. gr. h laganna þess efnis að við bætist þrír nýir töluliðir. Orðalag töluliðanna tekur mið af 5.–7. tölul. 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 10. gr. laganna. Í minnisblaðinu kemur fram að magntölur í töluliðunum voru unnar í samráði við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem fer með markaðseftirlit með nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir rafrettur samkvæmt lögum um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018. Þá segir að magntölur tóbaks, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 96/1995, hafi verið hafðar til hliðsjónar með það að markmiði að tryggja samræmi þar á milli. Um frekari upplýsingar um forsendur magntala vísar meiri hlutinn til fyrrgreinds minnisblaðs.

Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
    Nefndinni barst minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 11. desember sl. Þar er lögð til breyting á 3. gr. a laga um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004, þess efnis að fjárhæð jöfnunargjalds á hverja kílóvattstund vegna dreifingar raforku verði hækkuð í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs frá síðustu hækkun jöfnunargjaldsins 1. janúar 2022. Fjárhæð jöfnunargjaldsins verði því 0,52 kr./kWst og 0,17 kr./kWst fyrir skerðanlegan flutning. Þá kemur fram í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis að það muni skila 446 millj. kr. í viðbótartekjur af jöfnunargjaldinu. Jafnframt er áætlað að hækkun á jöfnunargjaldi forgangsorku muni hækka raforkukostnað meðalheimilis í þéttbýli um 41 kr. á mánuði án virðisaukaskatts. Á móti muni sú hækkun þýða að raforkukostnaður meðalheimilis í dreifbýli lækki um allt að 500 kr. á mánuði.
    Einnig er lagt til að raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna verði undanþegin greiðslu jöfnunargjalds, að gjalddagar jöfnunargjalds verði tvisvar á ári og að fjárhæð jöfnunargjalds verði uppfærð árlega. Efnahags- og viðskiptanefnd lagði til sams konar breytingartillögu á síðasta löggjafarþingi við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld ( þskj. 846, 260. mál) en frumvarpið hlaut ekki lokaafgreiðslu við þinglok. Með hliðsjón af framangreindu og nánari umfjöllun í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis leggur meiri hlutinn til viðeigandi breytingu á 3. gr. a laganna.
    
    Að lokum leggur meiri hlutinn til minni háttar og tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

     1.      1. gr. orðist svo:
                  Í stað orðanna „og 2025“ og „og 2024“ í 1. málsl. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna kemur: 2025, 2027, 2028 og 2029; og: 2024, 2026, 2027 og 2028.
     2.      6. gr. orðist svo:
                  Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða LXVII í lögunum:
                  a.      Í stað orðanna „og 2025“ og „og 2024“ í 1. málsl. kemur: 2025, 2027, 2028 og 2029; og: 2024, 2026, 2027 og 2028.
                  b.      Í stað orðanna „og 2024“ í 2. málsl. kemur: 2024, 2026, 2027 og 2028.
     3.      IV. kafli (11. og 12. gr.) falli brott.
     4.      Á eftir c-lið 16. gr. komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað orðanna „getur skipað“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: skal skipa.
     5.      Í stað orðsins „Álag“ í 2. efnismgr. 25. gr. komi: Við ákvörðun álags.
     6.      Á eftir 37. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
             Við 10. gr. h laganna bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
              5.      Af samtals 10 dósum af nikótínvörum eða 10 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 20 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem flugverjar er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis.
              6.      Af samtals 20 dósum af nikótínvörum eða 20 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 40 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem ferðamenn, skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis og flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, er hafa verið 15 daga eða lengur í ferð hafa meðferðis.
              7.      Af samtals 40 dósum af nikótínvörum eða 40 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 80 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila hafa meðferðis eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð.
     7.      Við bætist nýr kafli, XII. kafli, Breyting á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004, með einni nýrri grein, 37. gr., svohljóðandi:
             Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. a laganna:
                  a.      Í stað fjárhæðarinnar „0,41 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 0,52 kr.
                  b.      Í stað fjárhæðarinnar „0,13 kr.“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 0,17 kr.
                  c.      Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna skal undanþegin greiðslu jöfnunargjalds.
                  d.      Í stað 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gjalddagi er 1. júlí ár hvert fyrir fyrstu sex mánuði þess almanaksárs og byggist gjaldið á rauntölum skv. 2. mgr. vegna fyrstu sex mánaða næstliðins árs. Gjalddagi er 1. desember ár hvert fyrir seinni sex mánuði þess almanaksárs og byggist gjaldið á rauntölum skv. 2. mgr. vegna síðustu sex mánaða næstliðins árs.
                  e.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                     Fjárhæð jöfnunargjalds skal uppfærð 1. janúar ár hvert, á grundvelli tillögu frá Umhverfis- og orkustofnun.
     8.      C-liður 3. tölul. 39. gr orðist svo: Eftirfarandi breytingar verða á 44. gr. laganna:
              1.      3. tölul. 1. mgr. fellur brott.
              2.      Tilvísunin „3.“ í 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
              3.      3. málsl. 2. mgr. fellur brott.

    Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. desember 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Pawel Bartoszek.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.