Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1016, 157. löggjafarþing 296. mál: stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki (framkvæmd).
Lög nr. 27 6. apríl 2026.
Þingskjal 1016, 157. löggjafarþing 296. mál: stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki (framkvæmd).
Lög nr. 27 6. apríl 2026.
Lög um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framkvæmd).
1. gr.
Við 2. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við mat á fjárhagsvanda skv. 1. málsl. skal taka tillit til fjárhagsstöðu fyrirtækis sem er með meirihlutaeignarhald eða stjórnunarleg yfirráð í nýsköpunarfyrirtækinu, sé slíkt fyrirtæki til staðar.2. gr.
6. gr. laganna fellur brott.3. gr.
Við 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Samningur milli aðila um samstarfsverkefni skal liggja til grundvallar og skilað samhliða umsókn.4. gr.
Í stað orðsins „tveggja“ í 3. mgr. 8. gr. laganna kemur: þriggja.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað orðsins „tveggja“ í 3. málsl. kemur: þriggja.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Orðin „þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 20 hundraðshluta vegna aðkeyptrar rannsóknar- og/eða þróunarvinnu skv. 6. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- 5. mgr. orðast svo:
7. gr.
Við 16. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í reglugerð skal ráðherra enn fremur mæla nánar fyrir um mat á sérfræðimenntun, þjálfun eða reynslu starfsmanns.8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 27. mars 2026.