Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Sigurður Ingi Jóhannsson
2. þm. SU, F, SIJ
Sigurður Ingi Jóhannsson

   
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Fæddur í Reykjavík 12. mars 1975. Foreldrar: Gunnlaugur M. Sigmundsson (fæddur 30. júní 1948) cand. oecon., framkvæmdastjóri og fyrrverandi alþingismaður og Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir (fædd 5. október 1948) lífeindafræðingur og skrifstofustjóri. Maki: Anna Sigurlaug Pálsdóttir (fædd 9. desember 1974) mannfræðingur. Foreldrar: Páll Samúelsson og Elín Sigrún Jóhannesdóttir. Dóttir: Sigríður Elín (2012).

Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.

Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007. Forsætisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Dómsmálaráðherra 26. ágúst til 4. desember 2014.

Forseti Nordiska Ekonomie Studerandes Union 2000-2002. Fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkurborgar 2008-2010. Formaður Framsóknarflokksins 2009-2016. Í Þingvallanefnd 2017-2018. Formaður Miðflokksins síðan 2017.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2009-2013, alþingismaður Norðausturkjördæmis 2013-2017 (Framsóknarflokkur), síðan 2017 (Miðflokkurinn).

Forsætisráðherra 2013-2016, dómsmálaráðherra 2014.

Utanríkismálanefnd 2009-2013, 2017 og 2021-, efnahags- og viðskiptanefnd 2017-2021, framtíðarnefnd 2021-.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2009-2011, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2013, Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2017-2021 og 2021-2023, þingmannanefnd Íslands og ESB 2010-2013, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2023-.



Síðast breytt 27.09.2023.


sigmundurdavid.is
Twitter
Facebook

Símanúmer

Á dvalarstað: 552-5111

Aðstoðarmaður:
Hannes Karlsson

Þingstörf
7. þm. NA , Miðfl., SDG


Nefndasetur:

Atvinnuveganefnd áheyrnarfulltrúi
Efnahags- og viðskiptanefnd áheyrnarfulltrúi
Framtíðarnefnd
Utanríkismálanefnd

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.