 Drífa Hjartardóttir Fædd í Reykjavík 1. febrúar 1950. Foreldrar: Hjörtur Hjartarson (fæddur 23. desember 1929, dáinn 24. júlí 2008) vélfræðingur, kaupmaður og kona hans Jensína Guðmundsdóttir (fædd 9. september 1928) verslunarmaður. Maki (24. ágúst 1969): Skúli Lýðsson (fæddur 7. ágúst 1947) bóndi á Keldum á Rangárvöllum. Foreldrar: Lýður Skúlason bóndi og kona hans Jónína Þórunn Jónsdóttir ljósmóðir. Börn: Lýður (1969), Hjörtur (1973), Skúli (1980). Landspróf 1967 frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Stundaði nám í MR og hefur síðan sótt ýmis námskeið. Bóndi frá 1973. Starfsmaður Þjóðminjasafns Íslands fjóra mánuði á ári frá 1985. Meðhjálpari Keldnakirkju frá 1988. Formaður kvenfélagsins Unnar 1985-1987, formaður Sambands sunnlenskra kvenna 1987-1993, fulltrúi KÍ í Jafnréttisráði 1991-1999. Forseti Kvenfélagasambands Íslands frá 1994. Í undirbúningsnefnd Nordisk Forum í Finnlandi 1994. Sat ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking 1995. Í stjórn Landverndar 1995-1999. Formaður Norrænu húsmæðrasamtakanna NHF frá 1996, formaður fræðslusambandsins Símenntar frá 1997. Kosin af kirkjuráði 1998 í jafnréttisnefnd kirkjunnar. Formaður sóknarnefndar Keldnasóknar. Í undirbúningsnefnd á vegum Rangárvallaprófastsdæmis fyrir kristnitökuafmælið. Í hreppsnefnd Rangárvallahrepps frá 1986, í héraðsnefnd Rangárvallasýslu frá 1986. Formaður skólanefndar Grunnskóla Hellu 1986-1998. Í stjórn Byggðasafnsins í Skógum frá 1992, í héraðsráði frá 1994, í skólanefnd Skógaskóla 1994-1998. Stjórnarformaður Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Lundar frá 1995. Varamaður (fulltrúi umhverfisráðherra) í stjórn Náttúruverndar ríkisins frá 1996. Formaður fræðslu- og æskulýðsnefndar Rangárvallahrepps frá 1998, formaður félagsmálanefndar Rangárvallahrepps frá 1998, formaður skólanefndar Skógaskóla frá 1998. Endurskoðandi Lífeyrissjóðs bænda frá 1998 (fulltrúi fjármálaráðherra). Í stjórn Endurbótasjóðs menningarstofnana (fulltrúi menntamálaráðherra). Í nefnd um varðveislu eigna hússtjórnarskólanna. Í stjórn Félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu 1982-1987, í kjördæmisráði frá 1982, í fulltrúaráði frá 1982. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1991-1999. Formaður sjálfstæðisfélagsins Fróða 1992-1995. Formaður landbúnaðarnefndar Sjálfstæðisflokksins 1993-1999. Alþingismaður Suðurlands 1999-2003, alþingismaður Suðurkjördæmis 2003-2007 (Sjálfstæðisflokkur). Varaþingmaður Suðurlands apríl og nóvember 1992, nóvember 1993, nóvember-desember 1994, apríl-maí 1996, október 1997 og nóvember 1998. 6. varaforseti Alþingis 2005-2006. Umhverfisnefnd 1999, landbúnaðarnefnd 1999-2007 (formaður 2001-2007), iðnaðarnefnd 1999-2001, félagsmálanefnd 1999-2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999, fjárlaganefnd 2001-2007, heilbrigðis- og trygginganefnd 2003-2005, utanríkismálanefnd 2004-2007. Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2001-2007. |