Álfheiður Ingadóttir Fædd í Reykjavík 1. maí 1951. Foreldrar: Ingi R. Helgason (fæddur 29. júlí 1924, dáinn 10. mars 2000) hæstaréttarlögmaður og forstjóri Brunabótafélags Íslands og Ása Guðmundsdóttir (fædd 24. ágúst 1927, dáin 19. apríl 1962) hannyrðakona. Maki: Sigurmar K. Albertsson (fæddur 7. maí 1946) hæstaréttarlögmaður. Foreldrar: Albert Sigurðsson og Guðborg Franklínsdóttir. Sonur: Ingi Kristján (1991). Stúdentspróf MR 1971. B.Sc.-próf í líffræði HÍ 1975. Nám í þýsku og fjölmiðlun við Freie Universität í Vestur-Berlín 1976-1977. Kenndi líffræði með námi í MH og MR. Blaðamaður, þingfréttamaður og um tíma fréttastjóri við Þjóðviljann 1977–1987. Framkvæmdastjóri laxeldisstöðvarinnar Hafeldis í Straumsvík 1987–1989. Vann við gerð einkaleyfisumsókna og skráningu vörumerkja 1989–1991. Blaðamaður í lausamennsku 1991-1996. Upplýsingafulltrúi Samtaka um kvennaathvarf 1994–1995 og framkvæmdastjóri ráðstefnu norrænna kvennaathvarfa á Íslandi í nóvember 1995. Útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands 1996-2007 og ritstjóri Náttúrufræðingsins 1996-2006. Heilbrigðisráðherra 1. október 2009 til 2. september 2010. Í stjórn ABR, í miðstjórn og framkvæmdastjórn AB af og til 1973–1998. Varaborgarfulltrúi 1978–1986. Í umhverfisráði 1978–1986, formaður þess um skeið. Í jafnréttisnefnd 1982–1986. Sat í nefnd um byggingu Náttúruhúss í Reykjavík 1989–1990. Formaður nefndar um áhættumat Reykjavíkurflugvallar 1990-1991. Tók þátt í stofnun Reykjavíkurlistans 1994 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum hans frá upphafi til enda. Í stjórn Sorpu 1994–1998. Í nefnd um mótun orkustefnu Reykjavíkurborgar 2002–2003, í stjórn Landsvirkjunar 2003-2006. Formaður Þingvallanefndar 2009-2013. Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2007-2009, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2009-2013 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð). Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis nóvember-desember 1987 (Alþýðubandalag), varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður nóvember-desember 2003, nóvember-desember 2004, nóvember 2006, október 2014 og maí 2017 og varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður nóvember 2018, apríl, maí og september 2019 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð). Heilbrigðisráðherra 2009-2010. 5. varaforseti Alþingis 2009 og 2010-2012. Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2012-2013. Heilbrigðis- og trygginganefnd 2007, heilbrigðisnefnd 2007-2009, iðnaðarnefnd 2007-2009, allsherjarnefnd 2009 og 2010-2011, viðskiptanefnd 2009 (formaður) og 2010-2011 (formaður 2011), kjörbréfanefnd 2009-2011, efnahags- og skattanefnd 2009 og 2010-2011, umhverfisnefnd 2010-2011, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011-2013, velferðarnefnd 2011-2012 (formaður 2011-2012), umhverfis- og samgöngunefnd 2012-2013. Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009 og 2010-2013. |