Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Jón Gunnarsson
6. þm. SV, S, JónG
Jón Gunnarsson

   
Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir

      F. í Reykjavík 4. okt. 1942. For.: Sigurður Egill Ingimundarson (f. 10. júlí 1913, d. 12. okt. 1978) alþm. og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og Karítas Guðmundsdóttir (f. 19. des. 1917, d. 26. ágúst 1997) húsmóðir. M. 1. (28. febr. 1970) Þorvaldur Steinar Jóhannesson (f. 3. mars 1944) bankastarfsmaður í Reykjavík. Þau skildu. For.: Jóhannes Eggertsson og Steinunn G. Kristinsdóttir. M. 2. (15. júní 2002) Jónína Leósdóttir (f. 16. maí 1954) blaðamaður og leikskáld. For.: Leó Eggertsson og Fríða Björg Loftsdóttir. Synir Jóhönnu og Þorvalds: Sigurður Egill (1972), Davíð Steinar (1977). Sonur Jónínu: Gunnar Hrafn Jónsson (1981).
      Verslunarpróf VÍ 1960.
      Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962-1971. Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Félagsmálaráðherra 8. júlí 1987 til 24. júní 1994. Félagsmálaráðherra 24. maí 2007 og félags- og tryggingamálaráðherra í ársbyrjun 2008 til 1. febr. 2009. Forsætisráðherra 1. febr. 2009, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
      Í stjórn Flugfreyjufélags Íslands 1966-1969, formaður 1966 og 1969. Í stjórn félagsins Svölurnar 1974-1976, formaður 1975. Í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1976-1983. Varaformaður Alþýðuflokksins 1984-1993. Formaður í stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra og öryrkja 1979-1983. Í nefnd til að undirbúa frumvarp um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslu og endurskoðun laga um almannatryggingar 1978. Í tryggingaráði 1978-1987, formaður þess 1979-1980. Sat á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins 1980-1985. Formaður Þjóðvaka 1995. Formaður Samfylkingarinnar 2009-2013.

      Alþm. Reykv. 1978-2003 (landsk. 1979-1987) (Alþfl., Ufl., Þjóðv., JA., Samf.), alþm. Reykv. s. 2003-2007, alþm. Reykv. n. 2007-2013 (Samf.).
      Félagsmálaráðherra 1987-1994 og 2007-2008, félags- og tryggingamálaráðherra 2008-2009, forsætisráðherra 2009-2013.
      2. varaforseti Nd. 1979, 1. varaforseti Nd. 1983-1984, 4. varaforseti Alþingis 2003-2007.
      Utanríkismálanefnd 1995-1996, iðnaðarnefnd 1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995-1997 og 1999-2000 og 2004-2007, allsherjarnefnd 1996-1999, efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2007, kjörbréfanefnd 1999-2003, félagsmálanefnd 2003-2007.
      Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1996-2003, Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2003-2007.


Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)


Hagsmunaskráning




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.