Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Hildur Sverrisdóttir
5. þm. RS, S, HildS
Hildur Sverrisdóttir

   
Hannes Hafstein

Hannes Hafstein

Fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal 4. desember 1861, dáinn 13. desember 1922. Foreldrar: Pétur Havstein (fæddur 17. febrúar 1812, dáinn 24. júní 1875) alþingismaður og amtmaður þar og 3. kona hans Kristjana Gunnarsdóttir Havstein (fædd 20. september 1836, dáin 24. febrúar 1927) húsmóðir. Maki (15. október 1889) Ragnheiður Stefánsdóttir Hafstein (fædd 3. apríl 1871, dáin 18. júlí 1913) húsmóðir. Foreldrar: Stefán Thordersen alþingismaður og kona hans Sigríður Ólafsdóttir Stephensen, sem áður var 2. kona Péturs, föður Hannesar. Börn: Sigurður (1891), Kristjana (1892), Ástríður (1893), Þórunn (1895), Sigríður (1896), Sofía Lára (1899), Elín Jóhanna Guðrún (1900), Ragnheiður (1903), Kristjana (1911), Sigurður Tryggvi (1913).

Stúdentspróf Lsk. 1880. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1886.

Settur sýslumaður í Dalasýslu 1886, sat að Staðarfelli. Málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1887. Sinnti síðan lögfræðistörfum um hríð. Landshöfðingjaritari frá 1889 og jafnframt að nýju málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1890—1893. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1896—1904. Skipaður 31. janúar 1904 ráðherra Íslands frá 1. febrúar að telja, lausn 31. mars 1909. Bankastjóri við Íslandsbanka 1909—1912. Skipaður 24. júlí 1912 ráðherra Íslands að nýju frá 25. júlí, lausn 21. júlí 1914. Varð aftur bankastjóri við Íslandsbanka 1914 og gegndi því starfi til 1917, er hann varð að láta af því vegna vanheilsu.

Endurskoðandi Landsbankans 1890—1896. Átti sæti í millilandanefndinni 1907, varaformaður hennar og formaður íslenska hlutans. Skipaður 1911 í milliþinganefnd um rannsókn á fjármálum landsins og í aðra um skattamál, skipaður 1914 í velferðarnefnd. Foringi Heimastjórnarflokksins 1901—1912.

Alþingismaður Ísfirðinga 1900—1901, alþingismaður Eyfirðinga 1903—1915, landskjörinn alþingismaður 1916—1922, sat síðast á þingi 1917 (Heimastjórnarflokkurinn, Sambandsflokkurinn, Heimastjórnarflokkurinn).

Ráðherra Íslands 1904—1909 og 1912—1914.

Forseti sameinaðs þings 1912.


Kvæði hans hafa birst í mörgum útgáfum. — Ævisaga hans eftir Kristján Albertsson kom út í þrem bindum 1961, 1963 og 1964.

Ritstjóri: Verðandi (1882).


Síðast breytt 07.09.2015.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.