Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
10. þm. RS, Flf, KÁB
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

   
Katrín Fjeldsted

Katrín Fjeldsted

Fædd í Reykjavík 6. nóvember 1946. Foreldrar: Lárus Fjeldsted (fæddur 30. ágúst 1918, dáinn 9. mars 1985) forstjóri og kona hans Jórunn Viðar (fædd 7. desember 1918) tónskáld. Maki (23. september 1967): Valgarður Egilsson (fæddur 20. mars 1940, dáinn 17. desember 2018) læknir. Foreldrar: Egill Áskelsson og kona hans Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Börn: Jórunn Viðar (1969), Einar Vésteinn (fæddur 1973, dáinn 1979), Vésteinn (1980), Einar Steinn (1984).

Stúdentspróf frá MR 1966. Kandídatspróf í læknisfræði frá HÍ 1973. Framhaldsnám í Bretlandi 1974-1979, sérfræðingur í heimilislækningum 1980.

Læknir við heilsugæslustöðina í Fossvogi frá nóvember 1980, þar af yfirlæknir 1980-1982 og frá febrúar 1997 til ágúst 2002. Settur aðstoðarborgarlæknir 1979-1980.

Borgarfulltrúi í Reykjavík 1982-1994. Í borgarráði 1986-1994. Annar varaforseti borgarstjórnar 1985-1994. Formaður heilbrigðisráðs 1982-1990, og eftir það formaður heilbrigðisnefndar til 1994. Varaformaður umferðarnefndar 1982-1986 og umhverfismálaráðs 1990-1994. Í stjórn Sorpu 1992-1994. Formaður undirbúningsnefndar fyrir menningarviku 1993 í Glasgow „Breaking the ice“ fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Formaður Félags íslenskra heimilislækna 1995-1999. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1999 og 2000. Í CP, fastanefnd evrópskra lækna, síðan 1999.

Alþingismaður Reykvíkinga 1999-2003 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Reykvíkinga nóvember 1995, maí-júní 1996, mars-maí 1997 og maí-júní 1998, Reykjavíkurkjördæmis norður október og nóvember-desember 2004, desember 2006 og janúar og febrúar 2007 (Sjálfstæðisflokkur).

Landbúnaðarnefnd 1999, iðnaðarnefnd 1999, félagsmálanefnd 1999, umhverfisnefnd 1999-2003, heilbrigðis- og trygginganefnd 1999-2003, allsherjarnefnd 1999-2003.

Íslandsdeild VES-þingsins 1999-2003.



Síðast breytt 10.03.2020.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.