F. á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi 9. apríl 1949. For.: Ágúst Þorvaldsson (f. 1. ágúst 1907, d. 12. nóv. 1986) alþm. og bóndi, móðurbróðir Guðjóns Guðmundssonar alþm., og k. h. Ingveldur Ástgeirsdóttir (f. 15. mars 1920, d. 6. ágúst 1989) húsmóðir. K. (2. júní 1973) Margrét Hauksdóttir (f. 3. apríl 1955) leiðbeinandi. For.: Haukur Gíslason og k. h. Sigurbjörg Geirsdóttir. Dætur: Brynja (1973), Agnes (1976), Sigurbjörg (1984).
Búfræðipróf Hvanneyri 1968.
Mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna 1976-1987. Skip. 28. maí 1999 landbúnaðarráðherra, lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 landbúnaðarráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
Formaður Umf. Baldurs í Hraungerðishreppi 1969-1974. Formaður Félags ungra framsóknarmanna í Árnessýslu 1972-1975. Formaður kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi 1979-1986. Formaður Sambands ungra framsóknarmanna 1980-1982. Í stjórn Hollustuverndar ríkisins 1982-1986. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands 1990-1998, formaður 1990-1993. Í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins 1990-1997, formaður 1990-1993. Formaður stjórnar Lánasjóðs landbúnaðarins 1998-1999. Í fulltrúaráði Sólheima í Grímsnesi 1990-1994. Í Þingvallanefnd 1995-2008. Varaformaður Framsóknarflokksins 2001-2007, formaður hans 2007-2008.