Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ólína Þorvarðardóttir
7. þm. NV, Sf, ÓÞ
Ólína Þorvarðardóttir

   
Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson

      F. á Ísafirði 14. maí 1943. For.: Grímur Kristgeirsson (f. 29. sept. 1897, d. 19. apríl 1971) hárskeri og k. h. Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar (f. 20. nóv. 1914, d. 4. maí 1966) húsmóðir. K. 1. (14. nóv. 1974) Guðrún Katrín Þorbergsdóttir (f. 14. ágúst 1934, d. 12. okt. 1998) framkvæmdastjóri. For.: Þorbergur Friðriksson og k. h. Guðrún Beck. K. 2. (14. maí 2003) Dorrit Moussaieff (f. 12. janúar 1950) skartgripahönnuður. For.: Shlomo Moussaieff og k.h. Alisa Moussaieff. Dætur Ólafs og Guðrúnar: Guðrún Tinna (1975), Svanhildur Dalla (1975).
      Stúdentspróf MR 1962. BA-próf í hagfræði og stjórnmálafræði háskólanum í Manchester í Englandi 1965, doktorspróf í stjórnmálafræði sama skóla 1970.
      Lektor í stjórnmálafræði Háskóla Íslands 1970-1973, prófessor 1973-1993. Skip. 28. sept. 1988 fjármálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Kjörinn forseti Íslands 29. júní 1996 og tók við embætti 1. ágúst, endurkjörinn án atkvæðagreiðslu 2000, endurkjörinn 2004. Situr á Bessastöðum.
      Í miðstjórn Framsóknarflokksins 1967-1974 og í framkvæmdastjórn 1969-1973, í blaðstjórn Tímans 1967-1971. Í útvarpsráði 1971-1975. Formaður framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna 1974-1976. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins síðan 1977 og í framkvæmdastjórn frá 1977, formaður hennar 1983-1987. Formaður Alþýðubandalagsins 1987-1995. Sat þing Evrópuráðsins 1980-1984. Starfandi ritstjóri Þjóðviljans um skeið 1983-1985. Forseti alþjóðlegra þingmannasamtaka (Parliamentarians for Global Action) síðan 1984. Í stjórn Landsvirkjunar 1987-1991. Fulltrúi Alþingis á RÖSE-þingi 1992.

      Landsk. alþm. (Reykv.) 1978-1979, alþm. Reykv. 1979-1983, alþm. Reykn. 1991-1996 (Alþb.).
      Landsk. vþm. (Austurl.) okt.-nóv. 1974 og okt.-nóv. 1975 (Frjálsv.), vþm. Reykv. nóv.-des. 1983, febr.-apríl 1984, mars-apríl og nóv.-des. 1985, vþm. Reykn. okt. 1987, okt.-nóv. 1988, mars 1989, okt. 1990 (Alþb.).
      Fjármálaráðherra 1988-1991.
      Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1980-1983.

      Hefur samið fjölda rita og greina um þjóðfélagsmál, stjórnmálafræði, afvopnunarmál o.fl.

Síðast breytt 03.08.2005. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.