Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Björn Valur Gíslason
8. þm. NA, Vg, BVG
Björn Valur Gíslason

   
Björn Bjarnason

Björn Bjarnason

      F. í Reykjavík 14. nóv. 1944. For.: Bjarni Benediktsson (f. 30. apríl 1908, d. 10. júlí 1970) alþm. og ráðherra og seinni k. h. Sigríður Björnsdóttir (f. 1. nóv. 1919, d. 10. júlí 1970) húsmóðir. K. (21. sept. 1969) Rut Ingólfsdóttir (f. 31. júlí 1945) fiðluleikari. For.: Ingólfur Guðbrandsson og k. h. Inga Þorgeirsdóttir. Börn: Sigríður Sól (1972), Bjarni Benedikt (1978).
      Stúdentspróf MR 1964. Lögfræðipróf HÍ 1971. Hdl. 1979.
      Útgáfustjóri Almenna bókafélagsins 1971-1974. Fréttastjóri erlendra frétta á Vísi 1974. Deildarstjóri í forsætisráðuneytinu 1974-1975, skrifstofustjóri 1975-1979. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1979-1984, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins 1984-1991. Skip. 23. apríl 1995 menntamálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skip. 28. maí 1999 menntamálaráðherra, lausn 2. mars 2002. Skip. 23. maí 2003 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skip. 24. maí 2007 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 1. febr. 2009.
      Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1967-1968. Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1968-1974, formaður 1972-1974. Í stjórn landsmálafélagsins Varðar 1972-1974. Í stjórn Samtaka um vestræna samvinnu frá 1973, formaður 1982-1986. Í stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 1976-1986. Í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs 1977-1993, formaður 1977-1986. Í öryggismálanefnd ríkisstjórnarinnar 1980-1991 (er hún var lögð niður). Stjórnarformaður Almenna bókafélagsins 1987-1991, í bókmenntaráði félagsins 1974-1987. Félagi í International Institute for Strategic Studies í London frá 1973. Í stjórn Sögufélags 1988-2001. Skip. 1988 fulltrúi kirkjuráðs í ráðgjafarnefnd Rannsóknastofnunar í siðfræði. Í Þingvallanefnd 1991-2009, formaður 1992-2009. Skip. 1991 formaður þyrlunefndar. Skip. 1992 í þróunarnefnd Háskóla Íslands, í nefnd um öryggis- og varnarmál Íslands, í nefnd til að undirbúa lögfestingu mannréttindasáttmála Evrópu og í nefnd um stofnun Listaháskóla Íslands, formaður. Fulltrúi Alþingis á RÖSE-þingi 1992. Formaður ritnefndar vegna sögu Stjórnarráðs Íslands 1999-2004. Formaður Aflans, félags qi-gong iðkenda, síðan 2002. Í borgarstjórn Reykjavíkur 2002-2006. Í borgarráði 2002-2003. Í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkurborgar 2002-2003. Í almannavarnanefnd Reykjavíkur 2002-2003. Í stjórn Aflvaka hf. síðan 2002. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 2002-2003. Í stjórn Aflvaka 2002-2003. Í samstarfsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis 2003. Í stjórn Skipulagssjóðs Reykjavíkurborgar 2003.

      Alþm. Reykv. 1991-2003, alþm. Reykv. n. 2003-2007, alþm. Reykv. s. 2007-2009 (Sjálfstfl.).
      Menntamálaráðherra 1995-2002, dóms- og kirkjumálaráðherra 2003-2009.
      4. varaforseti Alþingis 1991-1992.
      Utanríkismálanefnd 1991-1995 (form. 1992-1995), 2002-2003 og 2009, allsherjarnefnd 1991-1995, menntamálanefnd 1991-1995, sérnefnd um stjórnarskrármál 1992-1994, sérnefnd um stjórnarskrármál (seinni) 2009.
      Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 1991-1995 (form.).

      Hefur birt á íslensku og öðrum málum rit og tímaritsgreinar um öryggismál Íslands og Norðurlanda, um önnur utanríkismál og stjórnmál, auk fjölda blaðagreina.

Síðast breytt 04.05.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur

Þingsetutímabil og embætti á Alþingi og í ríkisstjórnum.
Nefndasetur.
 
Þingstörf
Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.