Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Pawel Bartoszek
9. þm. RN, V, PawB
Pawel Bartoszek

   
Ólafur Sigurðsson

Ólafur Sigurðsson

Fæddur í Ási í Hegranesi 19. september 1822, dáinn 11. júlí 1908. Foreldrar: Sigurður Pétursson (fæddur 9. janúar 1790, dáinn 23. mars 1857) bóndi þar og kona hans Þórunn Ólafsdóttir (fædd 6. nóvember 1795, dáin 4. nóvember 1871) húsmóðir. Maki (23. maí 1854): Sigurlaug Gunnarsdóttir (fædd 29. mars 1828, dáin 20. júlí 1905) húsmóðir. Foreldrar: Gunnar Gunnarsson og kona hans Ingibjörg Björnsdóttir. Börn: Jón (1855), Sigurður (1856), Ingibjörg (1857), Gunnar (1859), Pétur (1861), Björn (1862), Guðmundur (1863), Pétur (1866), Þórunn (1870), Þorvaldur (1872).

Bóndi í Ási 1854—1897, er synir hans tóku við jörðinni, en átti þar áfram heima til æviloka. Umboðsmaður Reynistaðarklaustursjarða 1869—1888.

Oddviti Rípurhrepps 1874—1883 og 1888—1896.

Alþingismaður Skagfirðinga 1864—1869.



Síðast breytt 02.03.2016.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.